Spánarleiga er í sumarskapi og í tilefni þess höfum við ákveðið að festa gengi evrunnar í 100 krónum!
Kíkið á íbúðirnar okkar og bókið fríið á spanarleiga@spanarleiga.is

Frábært golf og sólarfrí þar sem hægt er að sameina þarfir allra í fjölskyldunni.

Flesta dreymir um hinn fullkomna stað fyrir sumarfrí. Í þessum draumi er venjulega góður dvalarstaður, gott veður, fallegar strendur, eitthvað gott að borða og eitthvað skemmtilegt að gera.

Hvernig væri að láta drauminn rætast, bóka ódýrt beint flug til Alicante og leigja sér fallega íbúð með góðum sundlaugargarði eða jafnvel einbýlishús með einkasundlaug. Við bjóðum upp á úrval eigna í fallegu umhverfi þar sem loftslagið er eitt það besta í heiminum samkvæmt niðurstöðu Alþjóðaheilbrigðisstonfunarinnar, WHO.

Spánarleiga býður upp á frábærar íbúðir og hús til leigu í um 30-45 mín akstur suður af Alicante. Þangað er nú flogið í ódýru beinu flugi nokkrum sinnum í viku. Auðvelt er að skipuleggja ódýrt og skemmtilegt frí þar sem allir í fjölskyldunni geta notið sín; sóldýrkandinn, golfarinn, sælkerinn og allir hinir.

Hvar viltu vera?

Dona Pepa er vinsæll bær í nágrenni við Ciudad Quesada, Guardamar ströndina og Torrevieja. Úrval góðra verslana og veitingastaða eru í göngufæri og fjöldi góðra golfvalla í næsta nágrenni. Ertu golfari og vilt vera á LAS RAMBLAS, einum af bestu golfvölfvöllum Spánar þar sem bíða þín kerfjandi verkefni við að koma kúlunni í holu. Einnig er hægt að vera í Los Alcazares, aldagömlum spænskum sumarleyfisbæ, með frábærri strönd, og úrvali af góðum golfvöllum í næsta nágrenni. Spánverjar sjálfir njóta þess að vera í fríi í Los Alcazares enda bærinn einstaklega fallegur með miklu úrvali af góðum veitingastöðum og verslunum.

Spánarleiga.is | spanarleiga@spanarleiga.is